Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 102. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 9. október 2003

144/2003

Lísa Ásgeirsdóttir (Erlendur Gíslason hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

X var sakfelldur fyrir brot á 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brotaþoli var aðeins 16 ára þegar X, sem hún þekkti ekkert, framdi brotið. Brotið var talið gróft og hafði í för með sér talsverða líkamlega áverka. Miðað við eðli og alvarleika brotsins þótti refsing X hæfilega ákveðin 2 ára fangelsi.

Hæstiréttur birt 3. september 2002

316/2002

Tollstjórinn í Reykjavík (Óskar Thorarensen hrl) gegn GÁJ lögfræðistofu ehf (Garðar Valdimarsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Fjárnám. Skattur.

G ehf. færði til gjalda um það bil 15 milljónir króna í rekstrarreikningum sínum árin 1994 og 1995 vegna kaupa á lögfræðiþjónustu af H ehf., sem lögmennirnir G og J veittu viðskiptavinum G ehf. en þáðu greiðslur fyrir frá H ehf. Á þeim tíma, sem málið varðaði, var G eigandi að 99% hlut í báðum félögunum. Athugun skattstjóra á bókhaldsgögnum H ehf. leiddi í ljós að kostnaður félagsins vegna þjónustu, sem það keypti af G, og launa og launatengdra gjalda, sem það greiddi vegna hans og J, nam samtals 185.000 krónum árið 1994 og 3.799.148 krónum árið 1995. Fyrir álagningu opinberra gjalda gjaldárið 1995 námu eftirstöðvar ónotaðs rekstrartaps H ehf. frá fyrri árum tæplega 19 milljónum króna. Kom því ekki til álagningar tekjuskatts á félagið á árunum 1995 og 1996 vegna tekna þess af þeirri þjónustu, sem var seld G ehf. Í dómi Hæstaréttar segir að eins og atvikum sé háttað verði að ganga út frá því, líkt og gert hafi verið af hálfu skattyfirvalda, að viðskipti félaganna hafi fyrst og fremst komið til vegna þeirra hagsmuna, sem aðaleigandi þeirra hafði af því hjá hvoru félaginu tekjur G ehf. af seldri þjónustu kæmu til skattlagningar. Þá yrði að teljast ljóst að ákvörðun um að greiða þeim G og J fyrir þjónustu, sem var veitt viðskiptavinum G ehf., af reikningi H ehf., hafi fyrst og fremst haft það markmið að mynda viðskipti á milli félaganna með það fyrir augum að nýta rekstrartap H ehf. á móti tekjum G ehf., enda muni viðskiptunum að mestu hafa lokið þegar ónotaða rekstrartapið var upp urið. Séu ekki efni til að draga í efa að áðurnefnd stjórnunar- og eignatengsl milli félaganna hafi þar ráðið úrslitum. Í ljósi alls þessa hafi skipti félaganna verið verulega frábrugðin því, sem almennt gerist í slíkum viðskiptum, og engin ástæða til að ætla að til þeirra hefði komið milli óskyldra aðila. Hafi skattstjóra því verið rétt að lækka gjaldfærðan rekstrarkostnað G ehf. um þær fjárhæðir, sem voru mismunur á því gjaldi, sem félagið innti af hendi til H ehf., og þeim greiðslum, sem runnu frá síðarnefnda félaginu til G og J, sbr. þá meginreglu, sem búi að baki 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981.

Hæstiréttur birt 16. desember 1999

332/1999

Verkfræðistofa Suðurlands ehf (Árni Vilhjálmsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigrún Guðmundsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í úrskurði ríkisskattstjóra 20. mars 1997 var talið að skattskyld velta V árið 1990 hefði verið vantalin um fjárhæðir tiltekinna sölureikninga sem allir höfðu verið útgefnir 1. janúar 1991 vegna vinnu sem unnin hafði verið í desember 1990. Var V gert að greiða viðbótarvirðisaukaskatt auk álags af þessum sökum. Úrskurður ríkisskattstjóra var staðfestur af yfirskattanefnd. V krafðist ógildingar úrskurðar yfirskattanefndar og taldi að miða ætti við útgáfudag reiknings við uppgjör skattskyldrar veltu, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 50/1987 um virðisaukaskatt. Í héraðsdómi var talið, að V hefði samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 501/1989 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila borið að gefa út reikninga sína í lok þess mánaðar sem vinnan var innt af hendi. Þótt á það væri fallist, að reynst gæti óhæg skylda að gefa út reikning við sérhverja afhendingu eða í lok mánaðar þætti það eitt ekki veita nægjanlega stoð til að víkja frá skýrum ákvæðum settra laga og stjórnvaldsfyrirmæla. Var kröfu V um ógildingu úrskurðarins hafnað. Fyrir Hæstarétti krafðist V aðallega ómerkingar héraðsdóms, þar sem þörf hefði verið sérfróðra meðdómenda í héraði með þekkingu á venjum um útgáfu reikninga þjónustufyrirtækja. Talið var, að ágreiningsefni málsins lyti að túlkun á lögum nr. 50/1988 og þágildandi reglugerð nr. 501/1989. Eins og hér háttaði til hefðu staðhæfingar um venju og framkvæmd orðið að koma fram sem hluti málflutnings aðila og hefði héraðsdómari verið bær til þess að leysa úr málinu. Væru því ekki efni til þess að verða við ómerkingarkröfu V. Með skírskotun til forsendna héraðsdóms var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 21. október 1999

156/1999

Landsbanki Íslands hf (Baldur Guðlaugsson hrl) gegn ríkisskattstjóra (Sigurmar Kristján Albertsson hrl, Garðar Valdimarsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

R ákvað að kanna framkvæmd laga nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur með því að bera saman framtaldar fjármagnstekjur 1347 skattgreiðanda og þær fjárhæðir sem bankar og sparisjóðir höfðu reiknað þeim í fjármagnstekjur og dregið af þeim í staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts. Viðskiptabankinn L taldi að R ætti ekki lögvarinn rétt til upplýsinga um þessi atriði án tengsla við eiginlega rannsókn á skattskilum tiltekinna aðila. Talið var að upplýsingar þær, sem R fór fram á, væru liður í hefðbundnu skatteftirliti og í samræmi við hlutverk skattyfirvalda. Varð ekki annað séð en að málefnalegar ástæður hefðu legið að baki beiðni R og öryggissjónarmiða gætt í viðeigandi mæli. Ekki var fallist á að L gæti borið fyrir sig 43. gr. laga nr. 113/1996 um viðskiptabanka og sparisjóði, enda væri þar skýrt tekið fram, að fyrirmæli ákvæðisins vikju þegar skylt væri að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þá þótti 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 ekki heldur koma í veg fyrir að umbeðnar upplýsingar yrðu veittar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms, um að L væri skylt að afhenda R umbeðnar upplýsingar.

Hæstiréttur birt 5. maí 1999

164/1999

Bára Þórarinsdóttir (Páll Arnór Pálsson hrl) gegn tollstjóranum í Reykjavík (Gunnar Ármannsson fulltrúi)

B krafðist þess, að felld yrði úr gildi fjárnámsgerð sem fram hafði farið fyrir kröfu T samkvæmt endurákvörðun skattstjóra á virðisaukaskatti. Fólst í þeirri endurákvörðun að innskattur B vegna kaupa og rekstrar á tiltekinni bifreið lækkaði auk þess sem B var látin sæta álagi á virðisaukaskatt. Þar sem sannað þótti að bifreið B hefði m.a. verið notuð til einkanota, var talið að bifreiðin hefði ekki fullnægt skilyrðum reglugerða, sem settar höfðu verið með nægilegri stoð í 3. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, til þess að telja hefði mátt til innskatts af henni. Þótti skattstjóra hafa verið rétt að hækka virðisaukaskatt B af þessum sökum og einnig að láta hana sæta álagi á skattinn. Þá var ekki talið að slíkir annmarkar væru á þeirri gagnaöflun, sem bjó að baki ákvörðun skattstjóra eða málsmeðferð hans að ógildingu hennar varðaði. Var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem kröfum B var hafnað.