Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 6. gr. laga nr. 73/2001 — Lög um fólksflutninga og farmflutninga á landi
S og V gerðu samning árið 2012 sem fól meðal annars í sér einkaleyfi S til reglubundinna fólksflutninga milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarsvæðisins. Einkaleyfið var reist á 7. gr. laga nr. 73/2001 um fólksflutninga og farmflutninga, sbr. 3. gr. laga nr. 162/2011. V afturkallaði leyfi til aksturs á umræddri leið árið 2013 eftir að S hafði boðið hann út og gengið til samninga við félag sem átti hagstæðasta tilboðið. S höfðaði mál gegn Í og krafðist viðurkenningu á bótaskyldu Í, annars vegar vegna missis hagnaðar sem hann hefði notið hefði V ekki afturkallað einkaleyfið og hins vegar vegna kostnaðar S af útboðs- og samningsgerð. Síðargreindu kröfunni var vísað frá héraðsdómi en var ekki kærð til Landsréttar og var af þeim sökum vísað frá Landsrétti. Í dómi Landsréttar kom fram að við framkvæmd og beitingu þeirra heimilda sem kveðið var á um í lögum nr. 73/2001 hefði V borið að fylgja reglugerð EB nr. 1370/2007 er tók gildi með reglugerð innanríkisráðherra nr. 128/2011. Reglugerð EB hefði gert aðildarríkjum kleift að úthluta einkaleyfum og styrkjum í því skyni að tryggja almannaþjónustu á sviði fólksflutninga sem ekki yrði veitt án slíkra ráðstafana. Væri til staðar samkeppnisrekstur sem tryggði neytendum viðhlítandi þjónustu væri ekki heimilt að beita ráðstöfunum samkvæmt reglugerðinni. Á grundvelli almennra reglna stjórnsýsluréttar var talið að afturköllun V á einkaleyfinu gæti komið til álita ef í ljós kæmi að leyfið rúmaðist ekki innan þeirra heimilda sem reglugerð EB veitti til stuðningsaðgerða. Í áliti Samkeppniseftirlitsins, sem V lagði til grundvallar við afturköllun leyfisins, hefðu komið fram upplýsingar sem gefið hafi V fullt tilefni til að álykta að gengið hefði verið lengra en nauðsyn krafði með því að veita S leyfið og að með því hefði verið farið út fyrir heimild sem reglugerð EB veitti til stuðningsaðgerða. Hefði S kosið að ganga til samninga í skjóli einkaleyfisins, þvert á ráðleggingar, sem hindraði samkeppni og tryggði honum hagnað umfram það sem heimilt var samkvæmt fyrrgreindri reglugerð EB. Meðal annars í þessu ljósi var afturköllun einkaleyfisins á umræddri akstursleið talin lögmæt og leiddi þar af leiðandi ekki til bótaábyrgðar Í.
Stefnandi höfðaði mál á hendur ríkinu til greiðslu bóta vegna missis hagnaðar sem hann hefði notið hefði Vegagerðin ekki afturkallað einkaleyfi hans til að skipuleggja almenningssamgöngur á áætlunarleiðinni milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarsvæðisins. Dómurinn taldi að stefnandi hefði réttarstöðu stjórnvalds. Því hefði bæði honum og Vegagerðinni borið að fylgja fyrirmælum laga nr. 73/2011 eins og bar að túlka þau til samræmis við reglugerð EB nr. 1370/2007. Samkvæmt lögunum þannig túlkuðum var ekki heimilt að veita einkaleyfi til þess að skipuleggja almenningssamgöngur á leiðum þar sem fyrirtæki í samkeppnisrekstri veittu fullnægjandi þjónustu. Dómurinn taldi því að stefnandi hefði aldrei átt lögvarinn rétt til einkaleyfis á akstursleiðinni milli flugstöðvarinnar og Reykjavíkur. Af þeim sökum hafi hann ekki verið sviptur hagsmunum sem njóti verndar skaðabótaréttar þegar leyfið var afturkallað.