Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 4. gr. laga nr. 73/2001 — Lög um fólksflutninga og farmflutninga á landi

Hæstiréttur birt 23. maí 2013

26/2013

Iceland, Excursions og Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Lykilorð: Útboð. Opinber innkaup.

R efndi til útboðs um þjónustu hópferðabifreiða og skiptist útboðið í þrjá hluta. I ehf. bauð í alla hluta útboðsins en gengið var til samninga við önnur fyrirtæki. I ehf. kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála sem kvað upp úrskurð þess efnis að R hefði brotið gegn lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup við val á tilboði H ehf. í 1. hluta útboðsins. Í málinu krafðist I ehf. skaðabóta úr hendi R á grundvelli 101. gr. laganna á þeirri forsendu að R hefði brotið gegn 71. gr. sömu laga með því að taka ógildu tilboði H ehf. í akstur fyrir grunnskóla í 1. hluta útboðsins, en tilboð H ehf. hafði að mati I ehf. ekki uppfyllt hæfisskilyrði útboðslýsingarinnar. Talið var að H ehf. hefði uppfyllt hæfniskröfur um fjölda bifreiða samkvæmt útboðinu og að I ehf. hefði ekki tekist að sýna fram á að eignarhald bjóðenda á hópbifreiðum þeim sem nota átti við verkefnið hefði verið nauðsynlegt þar sem slíku skilyrði yrði ekki fundinn staður í skilmálum útboðsins þegar ákvæði þess voru virt. Þá hafði H ehf., sem var í eigu nokkurra hópbifreiðafyrirtækja, sinnt skólaakstri fyrir R í 14 ár og í fylgiskjali með tilboði fyrirtækisins hefði komið fram að fyrirtækið hafði yfir að ráða þeim vagnfjölda sem tilskilinn var í útboðinu. Hefði H ehf. því ekki borið frekari nauðsyn til að sýna fram á að það gæti fullnægt ákvæðum útboðsins, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga nr. 84/2007. Þá var það ekki talið hafa áhrif á gildi tilboðs H ehf. í skilningi 71. gr. laganna hvernig skilmálum um ábyrgir og tryggingar, hópferðaleyfisveitingar og undirverktaka var háttað. Að endingu var ekki fallist á það með I ehf. að mat R á reynslu H ehf. og starfsmanna þess af akstri skólabarna hefði verið rangt. Að öllu þessu virtu hefði R því verið rétt að meta tilboð H ehf. þannig að það uppfyllti skilmála útboðsins en einnig var talið að jafnræðis hefði verið gætt við matið. Var R því sýknað af kröfu I ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2012

E-4455/2011

Iceland Excursions Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hdl) gegn Reykjavíkurborg (Eyþóra Kristín Geirsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna kostnaðar stefnanda við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði á skólaakstri. Einnig krafðist stefnandi þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda stefnda vegna missis stefnanda á hagnað þar sem tilboði hans var ekki tekið. Dómurinn féllst ekki á að ólögmætt hafi verið að taka tilboði Hópferðamiðstöðvarinnar ehf. og voru skilyrði skaðabótaskyldu því ekki fyrir hendi. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda í málinu.