Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 51. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

571/2016

Hlíf Sturludóttir, Sigurlaug Sigurjónsdóttir, Bergur Pálsson, Margeir Rúnar Daníelsson, Unnur Stephensen og Arnþór Jónsson (Bjarki Þór Sveinsson hrl) gegn Sæmundi Ágústi Óskarssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og til réttargæslu Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður)

H o.fl. kröfðu SÁ um skaðabætur vegna mygluskemmda í þökum og annarra galla í raðhúsum sem þau höfðu keypt á árunum 2002-2006. Húsin höfðu upphaflega verið seld tilbúin til innréttinga en fullbúin að utan til H hf., E hf. og V ehf. á árinu 2002. SÁ hafði verið byggingarstjóri húsanna og byggðu H o.fl. kröfur sínar á hendur honum á grundvelli ábyrgðar hans samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem fram kom að meginorsök mygluskemmdanna í þökum húsanna væri að rekja til þess að loftun þeirra hefði ekki verið í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar, m.a. vegna þess að lokað hafði verið fyrir loftun þakanna með þéttipylsum og upprúlluðu álneti, en samkvæmt framburði áfrýjandans S fyrir dómi höfðu þéttipylsurnar verið settar upp veturinn 2003-2004. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt SÁ hefði staðhæft að hann hefði afhent byggingarfulltrúa bréf um að hann hefði hætt byggingarstjórn við umrædd hús á árinu 2002, þá hefði ekkert gagn þess efnis verið lagt fram í málinu. Þá væri ágreiningslaust að engin stöðuúttekt hefði farið fram. Væri því ósönnuð sú fullyrðing SÁ að hann hefði sagt sig frá byggingarstjórn húsanna. Af málatilbúnaði H o.fl. væri ljóst að þau teldu að orsakir myglu í þökum húsanna væri ekki eingöngu að rekja til uppsetningu þéttipylsanna heldur einnig til þess að ekki hefði verið byggt í samræmi við samþykktar teikningar, lög og reglugerðir þegar húsin voru reist. Þótt ekki yrði ráðið af matsgerð eða öðrum gögnum málsins hvenær H o.fl. hefðu mátt gera sér grein fyrir þeim göllum á loftræstingu þaka húsanna sem myglan var rakin til, hefði fyrningarfrestur kröfu þeirra í síðasta lagi byrjað að líða þegar þéttipylsurnar voru settar upp veturinn 2003-2004. Hefði krafa þeirra fyrnst 10 árum síðar og þar af leiðandi verið fyrnd þegar þau höfðuðu málið 19. júní 2014. Var það sama talið eiga við um kröfur H o.fl. vegna annarra galla á húsunum. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu SÁ því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. apríl 2007

E-3187/2007

Borgarlagnir ehf, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, ehf, Erna Arnar ehf. og Páll, Vígkonarson ehf, H.Pálsson ehf og Helgason og Co ehf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Formaco ehf. (Guðrún Finnborg Þórðardóttir hdl), Einari Matthíassyni (Skarphéðinn Pétursson hdl) og Erni Felixsyni (Kristín Edwald hrl)

Húsbyggjandi/seljandi dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna margvíslegra galla á nýrri fasteign. Vísað frá kröfum ex officio á hendur byggingarstjórum, þar sem ekki þótti í ljós leitt á hvaða verkþáttum hvor þeirra ábyrgð.