Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 51. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
S krafði G um greiðslu skuldar samkvæmt reikningi vegna verka sem S vann við smíði húss G. G tók til varna og vísaði til þess að ekkert samningssamband hefði komist á milli þeirra, heldur hafi verktakinn T ráðið S sem undirverktaka. G yrði ekki gerður ábyrgur fyrir efndum T við undirverktaka. G var talinn bera sönnunarbyrði fyrir því að T hafi verið verktaki alls verksins við að reisa umrætt hús og að fyrirsvarsmaður T, sem jafnframt var byggingarstjóri framkvæmdanna, hafi ráðið S til verksins sem undirverktaka T. Með því að G hafði ekki tekist sú sönnun voru kröfur S teknar til greina.