Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 30. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
Tveir lóðarleigusamningar ósamrýmanlegir um sama landskika. Bótaréttur viðurkenndur. Ekki fallist á fyrningu.
Gunnar Hólm Guðbjartsson (
Kristinn Bjarnason hrl)
gegn
Guðjóni Guðbjartssyni, Önnu M. Guðbjartsdóttur, Hólmfríði Guðbjartsdóttur, Guðbjarti Guðbjartssyni, Steinunni Guðbjartsdóttur og Ólafi S. Guðbjartssyni (
Einar Gautur Steingrímsson hrl)
Aðilar höfðu lengi deilt um óskipta sameign þeirra á jörðinni K og ýmsar tilraunir verið gerðar til skiptingar hennar. Tilgangur málshöfðunar GHG, var sá að koma fram slitum á sameigninni á þann hátt að hann fengi skipt út úr jörðinni nánar tilgreindri spildu í samræmi við eignarhluta sinn. Í stefnu var stærð spildunnar nánar tilgreind, án þess þó að greint væri frekar frá verðmæti landsins. Var sá annmarki ekki talin varða frávísun málsins. Talið var, að játa yrði GHG því úrræði að leita atbeina dómstóla til slita á sameigninni. Kröfugerð hans lyti á hinn bóginn að því að dómstólar skiptu umræddri spildu út úr sameigninni, í stað þess að gera kröfu til viðurkenningar á rétti hans til skiptingar sameignarinnar með slíkum hætti, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála. GHG hafi ekki borið því við í málinu að ákvæði skipulags- og byggingalaga, sem áskildi samþykki sveitarstjórnar fyrir skiptingu jarða, bryti gegn vernd eignarréttar samkvæmt stjórnarskrá, eða skýrt með haldbærum hætti hverja lögvarða hagsmuni hann hefði af því að fá dóm í málinu í samræmi við kröfugerð sína að virtu synjunarvaldi sveitarstjórnar samkvæmt ákvæðinu. Þá hafi engin viðhlítandi grein verið gerð fyrir því hverju máli ákvæði jarðalaga skiptu fyrir úrlausnarefnið. Að virtu öllu þessu voru þeir annmarkar á málatilbúnaði GHG að ekki varð komist hjá því að staðfesta niðurstöðu héraðsdóms um frávísun málsins.