Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 1. gr. laga nr. 69/2003 — Lög um Póst- og fjarskiptastofnun
Fjarskiptafyrirtækið Y höfðaði mál gegn F og krafðist ógildingar á úrskurði Ú þar sem staðfest var ákvörðun F um afturköllun á tíðniheimild sem Y hafði fengi úthlutað 2017 í kjölfar uppboðs á slíkum heimildum. Þá krafðist Y einnig viðurkenningar á bótaskyldu F vegna ætlaðs ólögmætis fyrrgreindrar ákvörðunar. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna, var rakið að með skírskotun til atvika og gagna málsins yrði ekki fallist á að rannsókn þess hafi verið ábótavant, að F hafi ekki gætt leiðbeiningarskyldu eða að afturköllunin hafi farið í bága við meðalhófs- eða jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Afturköllun á tíðniheimild til Y hafi verið lögmæt og var F því sýknað af öllum kröfum Y.
Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála nr. 5/2019.