Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 17. gr. laga nr. 68/1995 — Lög um Lúganósamninginn um dómsvald og um fullnustu dóma í einkamálum
Þrotabú M ehf. höfðaði mál á hendur B til heimtu skuldar samkvæmt skuldabréfi. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi, einkum með vísan til þess að B væri erlendur ríkisborgari sem ekki ætti varnarþing hér á landi og að skuld B ætti rót að rekja til hluthafasamnings þar sem mælt var fyrir um að úr ágreiningi vegna samningsins skyldi leysa fyrir gerðardómi austurríska verslunarráðsins í Vín. Hæstiréttur taldi að þrotabú M ehf. gæti nýtt sér áðurgreint ákvæði hluthafasamningsins ef það kysi svo, en væri ekki skuldbundið til þess. Að öðrum kosti væri þrotabúinu heimilt að höfða málið í þeirri þinghá sem ætti að efna samninginn. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.
Fallist var á kröfu stefnda um frávísun máls.