Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. laga nr. 66/1985 — Lög um Þjóðskjalasafn Íslands

Hæstiréttur birt 20. nóvember 2003

238/2003

Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram (Hörður Einarsson hrl) gegn Ríkisendurskoðun (Jónatan Sveinsson hrl)

Þegar J gegndi stöðu utanríkisráðherra á árinu 1989 óskaði hann eftir því við R að kannað yrði hvort greiðsla fyrir veisluföng í afmælisveislu B, eiginkonu hans, hefði verið með eðlilegum hætti. Á árinu 1988 þegar veislan var haldin gegndi J stöðu fjármálaráðherra. Með beiðninni sendi J einkaskjöl frá þeim hjónum varðandi greiðslu veislufanga svo bera mætti saman við gögn fjármálaráðuneytisins um áfengisúttektir samkvæmt risnuheimildum. Í málinu kröfðust J og B ógildingar á þeirri ákvörðun R, 25. júní 2002, að afhenda fjármálaráðuneytinu umrædd skjöl. Talið var að í beiðni J hafi falist ósk um að könnuð yrði meðferð risnuheimilda hans sem fjármálaráðherra og hafi athugunin lotið að meðferð opinberra fjármuna hjá því ráðuneyti. J hafi í þágu þeirrar athugunar lagt fram einkaskjöl og hafi þau þar með orðið hluti hennar. Hins vegar var talið ljóst að þessi skjöl hefðu ekki stafað frá fjármála- eða utanríkisráðuneyti og tilheyrðu því ekki skjalasöfnum þeirra. Engin lagaheimild þótti standa til þess að R afhenti fjármálaráðuneyti umrædd skjöl og var því fallist á kröfu J og B um ógildingu ákvörðunarinnar.