Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 65/1976 — Jarðalög

Hæstiréttur birt 19. maí 2005

186/2005

Sigurbjörg Sigurbergsdóttir Sigurþór Pétur Þórisson og Borgar Þórisson (Eyvindur G. Gunnarsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Kristján Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Þinglýsing.

Í skipti út úr jörð sinni tiltekinni spildu og gerði jafnframt samkomulag við F um afnot hennar. Sóknaraðilar töldu hina útskiptu spildu ná inn fyrir landamerki jarðar sinnar og kröfðust þess, að stofnskjal spildunnar ásamt fyrrnefndu samkomulagi yrði afmáð úr veðmálabókum. Talið var að ekki yrði fullyrt af gögnum málsins, að lýst merki hinnar útskiptu spildu úr landi Í næðu inn á land sóknaraðila. Jafnframt væri ljóst að stofnskjalið gæti ekki að lögum hróflað við landamerkjum jarðanna. Þá var þess sérstaklega getið í þinglýstu samkomulagi um afnot spildunnar, að vera kynni ágreiningur um merki jarðanna. Var kröfum sóknaraðila um aflýsingu skjalanna hafnað.