Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins nr. 65/1956
J o.fl. höfðuðu mál og kröfðust þess að viðurkennt yrði að vatnsréttindi lögbýlisins Stóra-Sandfells II í Grímsá í Skriðdal í Múlaþingi tilheyrðu lögbýlinu. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri unnt að líta svo á að fyrirliggjandi gögn stæðu til þess að álykta á þann veg að Rafmagnsveitur ríkisins, síðar R ohf., hefðu öðlast beinan eignarrétt að vatnsréttindum jarðarinnar Stóra-Sandfells II á grundvelli afsalsgernings. Nærtækast væri að ganga út frá því að í upphafi hefði stofnast til afnotaréttar að þessum réttindum jarðarinnar gegn tilteknu endurgjaldi sem síðar hefði verið viðhaldið. Við svo búið hvíldi engin skylda á eigendum jarðarinnar til að halda þinglýstum réttindum sínum við eða verja þau með sérstökum hætti og kæmi málsástæða R ohf. um tómlæti af þeirri ástæðu ekki til álita. Á sama grunni væru ekki skilyrði til að líta svo á að beinn eignarréttur að vatnsréttindunum hefði unnist fyrir hefð. Var viðurkenningarkrafa J o.fl. því tekin til greina.
Hafnað er kröfum stefnenda um eignarréttindi á vatnsréttindum í Grímsá á Fljótdalshéraði.