Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 5. gr. laga nr. 64/2006 — Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Landsréttur birt 26. júní 2020

706/2019

Borgun hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Sigurði Guðmundssyni (Lúðvík Örn Steinarsson lögmaður)

S var starfsmaður hjá B hf. og átti rétt á árangurstengdri þóknun fyrir árið 2014 samkvæmt samningi aðila um árangurstengingar sem tóku mið af kaupaukakerfi B hf. Í lok þess árs fékk S greidd 60% af umsömdum kaupauka en greiðslu 40% fjárhæðarinnar var frestað í þrjú ár. Sá hluti kaupaukans var hins vegar ekki inntur af hendi í árslok 2017 og höfðaði S mál á hendur B hf. til greiðslu hans. Deildu aðilar um það hvort B hf. hefði verið heimilt á grundvelli samnings aðila og reglna sinna um kaupaukakerfi að afturkalla þann hluta kaupauka S sem hafði verið frestað að greiða. Í dómi Landsréttar var lagt til grundvallar að með orðalagi endurkröfuákvæðis samnings aðila væri skírskotað til mælanlegra árangursviðmiða sem tiltekin væru í samningnum og hvíldi á B hf. að færa sönnur á að umsömdum árangursviðmiðum hefði að betur athuguðu máli ekki verið náð. Taldi Landsréttur að B hf. hefði hvorki fært viðhlítandi rök fyrir því að tilskilinni frammistöðu S og þess sviðs sem hann veitti forstöðu hefði ekki verið náð né að B hf. hefði fært nægjanleg rök fyrir því að staða hans hefði versnað verulega þótt hagnaður hans hefði dregist saman. Krafa S var því tekin til greina.