Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 3. gr. laga nr. 64/2006 — Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Landsréttur birt 14. desember 2018

362/2018

LANDSRÉTTUR og Dómur föstudaginn 14. desember 2018. og Mál nr. 362/2018: og Hermann Eyjólfsson (Guðmundur Ágústsson lögmaður, Leifur Runólfsson lögmaður, 1. prófmál), Árný ehf. (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður) og og Birken Ltd. (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, Almar Þór Möller lögmaður, 1. prófmál) gegn þrotabúi B 230 ehf (Helgi Jóhannesson lögmaður, Bragi Dór Hafþórsson lögmaður, 2. prófmál)

Í málinu krafðist þrotabú B ehf. skaðabóta óskipt úr hendi H, Á ehf. og B Ltd. Með dómi Hæstaréttar 11. maí 2017 í máli nr. 452/2016 var H sakfelldur fyrir umboðssvik vegna sölu B ehf. á þyrlu til B Ltd. H hefði einn verið eigandi félagsins B Ltd., kaupanda þyrlunnar, og eini eigandi Á ehf., móðurfélags B ehf., seljanda þyrlunnar. Þessi ráðstöfun áfrýjanda H persónulega og í gegnum einkafélög sín hefði valdið B ehf. tjóni en ekkert endurgjald kom fyrir þyrluna. Í dómi Landsréttar var tekið fram að þeim málsatvikum, sem lögð voru til grundvallar í dómi Hæstaréttar, hefði ekki verið hnekkt og því hefði dómurinn fullt sönnunargildi um þau. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að B Ltd. hefði með saknæmum og ólögmætum hætti aflað sér fjárhagslegra hagsmuna á kostnað B ehf. og að H, B Ltd. og Á ehf. bæru óskipta skaðabótaábyrgð á tjóni B ehf.