Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum á orkusviði. nr. 64/2003
Ákvörðun sýslumanns um að framhalda aðfaragerð var ómerkt að kröfu sóknaraðila, þar sem óvíst þótti að varnaraðili ætti þau réttindi sem krafa hans um fjárnám byggðist á, sbr. 2. mgr. 27. gr. laga nr. 9/1989 um aðför.
Áfrýjendur kröfðust skaðabóta úr hendi Í vegna tjóns, sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir við það að útlagður kostnaður þeirra einkum vegna lögfræðiaðstoðar við umsókn til landbúnaðarráðherra um leyfi til byggingar varnargarðs til að stöðva landbrot fyrir jörðum sínum, skaða á vatnafari og tjóni á veiði, og eftirfarandi málarekstur nýttist þeim ekki vegna mistaka landbúnaðarráðuneytisins við afgreiðslu erindisins. Áfrýjendur höfðu áður beint kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Í áliti hans voru settar fram margar athugasemdir við málsmeðferð ráðuneytisins. Fallist var á með áfrýjendum að málsmeðferð og niðurstaða landbúnaðarráðuneytisins hefði falið í sér brot á ákvæðum stjórnsýslulaga. Málsmeðferðin var því talin ólögmæt. Þá var talið að meðferð og afgreiðsla málsins af hálfu starfsmanna ráðuneytisins hefði verið haldin slíkum annmörkum, að skilyrðinu um saknæmi væri einnig fullnægt. Í var því dæmt til að bæta áfrýjendum tjón, sem fólst í því að útlagður kostnaður þeirra vegna reksturs stjórnsýslumálsins þar á meðal kvörtun til umboðsmanns Alþingis nýttist þeim ekki.