Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög
Ólöf Guðmundsdóttir, Áslaug Elsa Björnsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Páll Björnsson, Guðmundur Björnsson, Hafliði Sigurður Björnsson, Þorfinnur Jóhannes Björnsson, Brynhildur Björnsdóttir og Böðvar Björnsson (
Magnús Thoroddsen hrl)
gegn
Birni Björnssyni og Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur (
Bjarni Þór Óskarsson hrl)
BB stundaði búskap á jörðinni Y. Var leigugjald, sem BB skyldi inna af hendi fyrir ábúðina, ákvarðað í samningi hans við BP, eiganda jarðarinnar. Eftir andlát BP fékk Ö, eiginkona hans, leyfi til setu í óskiptu búi. Skipti hún jörðinni í tvær sjálfstæðar eignir og seldi öðrum áfrýjendum aðra þeirra. Töldu BB og O til forkaupsréttar að öllu því selda, að frátöldu íbúðarhúsi og lóðarskika umhverfis það og ákveðnum jarðarhluta. Kröfðust þau að samningurinn yrði ógiltur og Ö gert skylt að gefa út afsal, þeim til handa, gegn greiðslu tiltekinnar fjárhæðar. Fallist var á að til lífstíðarábúðar BB hefði stofnast 1985 og þar sem hún hefði staðið í meira en 10 ár hefði stofnast forkaupsréttur, honum og O til handa. Ekki var fallist á þá mótbáru áfrýjenda að BB og O hefði verið skylt að greiða frekari leigu fyrir ábúðina en kveðið var á um í samningi BB og BP, enda hafði sá síðarnefndi ekki haft uppi kröfur um frekari leigu en samningur þeirra kvað á um. Var því ekki fallist á að forkaupsréttur þeirra eða réttur til ábúðar væri niður fallinn fyrir vanefndir þeirra. Þá var ekki fallist á að skilyrðum laga hefði verið fullnægt til þess að Ö mætti taka hluta jarðarinnar undan lífstíðarábúð BB og O. Var því fallist á kröfu BB og O.