Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 24. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög

Hæstiréttur birt 8. nóvember 2007

163/2007

Snæfellsbær (Jónatan Sveinsson hrl) gegn Þórkeli Geir Högnasyni (Jón Höskuldsson hrl)
Lykilorð: Jörð. Ábúð. Uppsögn.

Árið 2005 var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í S að segja upp leigu Þ á 6,54 ha spildu úr jörðinni P, en spildan hafði verið hluti af landi sem Þ fékk til lífstíðarábúðar með byggingarbréfi árið 1986. Í byggingarbréfinu fyrir jörðina sagði að með vísan til tiltekinna ákvæða ábúðarlaga væri leigusala hvenær sem er heimilt að undanskilja og selja lóðir úr landi jarðarinnar undir hús til íbúðar, atvinnurekstrar og sumardvalar, auk þess sem leigusali héldi rétti sínum skv. sömu lögum til að taka jörðina eða hluta hennar úr lífstíðarábúð „vegna þarfa ríkisins“. Um orðalag byggingarbréfsins sagði í niðurstöðu Hæstaréttar að ekkert þeirra lagaákvæða sem byggingarbréfið vísaði til hefðu getað heimilað S að taka hluta jarðarinnar undan lífstíðarábúð Þ, eins og S leitaðist við með uppsögninni. Var niðurstaða héraðsdóms um ógildingu uppsagnar S því staðfest.