Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum. nr. 63/1994

Hæstiréttur birt 30. október 2008

70/2008

Jón Blöndal, Sveinbjörn B. Blöndal, Þorvaldur Blöndal, Þórarinn Blöndal og Þórmundur Blöndal (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)
Lykilorð: Stjórnsýsla. Skaðabætur.

Áfrýjendur kröfðust skaðabóta úr hendi Í vegna tjóns, sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir við það að útlagður kostnaður þeirra einkum vegna lögfræðiaðstoðar við umsókn til landbúnaðarráðherra um leyfi til byggingar varnargarðs til að stöðva landbrot fyrir jörðum sínum, skaða á vatnafari og tjóni á veiði, og eftirfarandi málarekstur nýttist þeim ekki vegna mistaka landbúnaðarráðuneytisins við afgreiðslu erindisins. Áfrýjendur höfðu áður beint kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Í áliti hans voru settar fram margar athugasemdir við málsmeðferð ráðuneytisins. Fallist var á með áfrýjendum að málsmeðferð og niðurstaða landbúnaðarráðuneytisins hefði falið í sér brot á ákvæðum stjórnsýslulaga. Málsmeðferðin var því talin ólögmæt. Þá var talið að meðferð og afgreiðsla málsins af hálfu starfsmanna ráðuneytisins hefði verið haldin slíkum annmörkum, að skilyrðinu um saknæmi væri einnig fullnægt. Í var því dæmt til að bæta áfrýjendum tjón, sem fólst í því að útlagður kostnaður þeirra vegna reksturs stjórnsýslumálsins þar á meðal kvörtun til umboðsmanns Alþingis nýttist þeim ekki.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2008

E-1130/2007

Jón Blöndal, Sveinbjörn B. Blöndal, Þorvaldur Blöndal, Þórarinn Blöndal og Þórmundur Blöndal gegn íslenzka ríkinu
Lykilorð: Skaðabætur.

Stefnendur kröfðu stefnda um skaðabætur vegna lögfræðikostnaðar, sem þeir báru vegna umsóknar til landbúnaðarráðuneytisins um heimild til að byggja varnargarð til að fella Hvítá í fornan farveg á þar tilgreindu svæði. Stefndi var sýknaður.