Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 82. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 16:46

980/2024

Þrotabú WOW air hf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Skúla Mogensen og Liv Bergþórsdóttur og Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður) og Jin Shan 20 Ireland Company Limited (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn þrotabúi WOW air hf.

Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur J, vegna þriggja nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til J. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslum. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindum greiðslum yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslurnar fóru fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var hvorki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga J hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum, né háttsemi W verið svo ámælisverð, að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var J því sýknað af kröfum þrotabúsins. Hvað skaðabótakröfu á hendur stjórnendum W varðaði taldi Landsréttur að hinar umdeildu greiðslur hefðu farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslurnar voru inntar af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sömuleiðis sýknuð af kröfum þrotabúsins.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 16:46

977/2024

RRPF Engine Leasing Limited (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn þrotabúi WOW air hf (Þorsteinn Einarsson lögmaður)

Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur RRPF, vegna tilgreindrar greiðslu flugfélagsins flugfélagsins W til RRPF. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindri greiðslu yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslan fór fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var ekki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga málsaðila hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var RRPF því sýknað af kröfum þrotabúsins.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 16:31

971/2024

Þrotabú WOW air hf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Skúla Mogensen, Liv Bergþórsdóttur Helgu Hlín Hákonardóttur (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Davíð Mássyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður)

Í málinu var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra flugfélagsins W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á tilgreindri greiðslu W til félagsins T, sem síðar varð SL. Með hinum áfrýjaða dómi hafði greiðslunni verið rift á grundvelli 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. og SL gert að endurgreiða þrotabúinu fjármunina. Voru stefndu S, L, H og D hins vegar sýknuð af skaðabótakröfu þrotabúsins. Eftir að SL áfrýjaði dóminum til Landsréttar greiddi félagið tilgreinda fjárhæð til þrotabúsins og féll frá áfrýjun á grundvelli sáttar við það. Fyrir Landsrétti byggði þrotabúið á því að um greiðslu inn á dómkröfuna hefði verið að ræða, og krafði S, L, H og D um eftirstöðvar hennar. Landsréttur taldi að hin umdeilda greiðsla hefði farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslurnar voru inntar af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sýknuð af kröfum þrotabúsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2024

E-2165/2020

Þrotabú WOW air hf (Þorsteinn Einarsson lögmaður) gegn RRPF Engine Leasing Ltd. (Gunnar Jónsson lögmaður), Skúla Mogensen (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Liv Bergþórsdóttur og Helgu Hlín Hákonardóttur og og Davíð Mássyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður)

Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélahreyflaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umræddar greiðslur voru inntar af hendi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2024

E-2162/2020

Þrotabú WOW air hf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn CIT Aerospace International (Gunnar Jónsson lögmaður) og Skúla Mogensen (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila hálfu ári fyrir gjaldþrot. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt og ekki var talið sýnt að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi en á þeim tíma var nýafstaðið skuldabréfaútboð WOW air hf. og fjármunir úr því útboði höfðu verið afhentir félaginu. Var því ekki heldur fallist á að skilyrði 141. gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt og riftun greiðslunnar hafnað. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi forstjóra fælist saknæm háttsemi enda félagið ekki ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi og ósannað að það hafi orðið það vegna greiðslunnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2024

E-2159/2020

Þrotabú WOW air hf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Saint Lawrence Aviation Leasing Ltd. (Gunnar Jónsson lögmaður), Skúla Mogensen (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Liv Bergþórsdóttur og Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður)

Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunnni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánadrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2024

E-2158/2020

Þrotabú WOW air hf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Jin Shan 20 Ireland Company Ltd. (Gunnar Jónsson lögmaður), Skúla Mogensen (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Liv Bergþórsdóttur og Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður)

Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánadrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.