Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 57/1990 — Lög um flokkun og mat á gærum og ull

Landsréttur birt 12. mars 2021

73/2020

Stjörnugrís hf (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Gjaldtaka. Skattur.
Málaflokkur: Skattaréttur

S hf. krafðist endurgreiðslu á svonefndu yfirmatsgjaldi sem innheimt var á grundvelli 2. mgr. 16. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir. Byggði S hf. á því að gjaldið væri ólögmætt enda hefði félagið ekki þegið þjónustu í formi yfirmats sem gjaldið tók til. Af hálfu íslenska ríkisins var á hinn bóginn á því byggt að gjaldið væri í reynd sérstakur skattur sem lagður væri á sláturleyfishafa með gildri lagaheimild til skattlagningar, sbr. 40., sbr. 77. gr. stjórnarskrár. Í dómi Landsréttar var litið til þess að umrætt gjald hefði verið sett samkvæmt fastákveðnu viðmiði án þess að ráðherra eða öðrum stjórnvöldum hefði verið falið mat eða framselt vald til að ákveða fjárhæð gjaldsins, nánari viðmið fyrir álagningu þess eða endurgreiðslur. Gæti það ekki haggað greiðsluskyldu sláturleyfishafa að gjaldinu var ætla að standa straum af kostnaði við yfirmat og að slíkt yfirmat færi mismikið eða jafnvel alls ekki fram. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu íslenska ríkisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. janúar 2020

E-3435/2018

Stjörnugrís hf (Sigurður Kári Kristjánsson) gegn Íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson)

Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda sem byggðu á ólögmætri töku þjónustugjalda vegna svokallaðs yfirmats sem sannarlega fór ekki fram hjá stefnanda. Komst dómurinn hins vegar að þeirri niðurstöðu að fallast bæri á með stefnda að umrætt gjald í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 96/1997 væri í reynd gild skattlagningarheimild og að skattheimtan hjá stefnanda hefði verið til samræmis við hana.