Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 9. gr. laga nr. 56/1972 — Lög um lögreglumenn

Hæstiréttur birt 14. febrúar 2002

348/2001

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Ólafi Tryggva Ólafssyni (Gylfi Thorlacius hrl)

Ó hóf nám á fyrri önn í Lögregluskóla ríkisins 1. september 1997. Samkvæmt þágildandi ákvæði 4. mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 5. gr. reglugerðar nr. 490/1997 skyldu nemar í starfsþjálfun og þeir sem stunduðu nám á síðari önn skólans teljast til lögreglumanna og skyldi starf þeirra vera launað. Í desember 1997 var Ó ráðinn tímabundið í starfsnám til lögreglunnar og skyldi um laun hans fara eftir gildandi kjarasamningi, sem var frá 30. ágúst 1997. Í 1. gr. þessa kjarasamnings var kveðið á um að áður gildandi samningur ætti að framlengjast væri ekki önnur skipan á gerð. Þar sem það var ekki gert gilti ákvæði 10.1.1 fyrra samnings áfram um laun lögreglunema, en þar var svo fyrir mælt að lögreglumenn sem stunduðu nám í Lögreglu­skóla ríkisins ættu auk fastra launa að njóta vaktaálags, ákveðins ferða­kostnaðar og fá greiddan hæfilegan dvalarkostnað. Krafa Ó um greiðslur var í samræmi við þetta og ekki var tölulegur ágreiningur í málinu. Voru kröfur Ó því teknar til greina.