Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. mgr. 111. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög

Hæstiréttur birt 3. október 2002

32/2002

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Standard Steamship Owners´ Protection & Indemnity Association Ltd (Garðar Briem hrl)

Í krafðist greiðslu úr hendi S vegna kostnaðar sem Í hafði greitt í kjölfar strands flutningaskipsins Víkartinds í mars 1997, en S hafði tekið að sér svokallaða P&I tryggingu vegna rekstrar skipsins. Hafnað var þeim mótbárum S sem reistar voru á því að Í hafi ekki sett fram kröfur innan tímamarka þeirrar ábyrgðaryfirlýsingar sem S hafði undirritað og Í reisti kröfu sína á. Þá var talið að orðalag yfirlýsingarinnar væri víðtækara en svo að hún einskorðaðist við björgunarkostnað í skilningi laga nr. 42/1926 um skipströnd og vogrek, líkt og S hafði haldið fram. Að mati dómsins var kostnaður vegna geymslugjalda af ósóttum farmi sem Eimskipafélagið hafði annast að beiðni sýslumannsins á Hvolsvelli í kjölfar strandsins, talinn vera á ábyrgð S hvort sem litið væri til ákvæða laga nr. 42/1926 eða ábyrgðaryfirlýsingarinnar. Varð því ekki fallist á þá almennu viðbáru S að skuldbinding hans tæki ekki til geymslugjalda. Hins vegar naut ekki við gagna í málinu um geymslutíma hverrar vörusendingar fyrir sig og upplýsingar þótti skorta um hvenær telja hafi mátt tímabært að farga eða leita nauðungarsölu á einstökum sendingum. Að þessu virtu þótti málið að þessu leyti svo vanreifað af hendi Í að kröfu hans um geymslugjöld varð að vísa sjálfkrafa frá héraðsdómi. Krafa Í um endurgreiðslu kostnaðar sem Í hafði greitt Sorpu vegna förgunar skemmdra vörusendinga þótti ekki studd viðhlítandi gögnum og var því sjálfkrafa vísað frá héraðsdómi. Þá var krafa Í um endurgreiðslu á kostnaði sem greiddur hafði verið fyrirtækinu Könnun fyrir „losun gáma og forskoðun“ tekin til greina en starfsmenn fyrirtækisins höfðu verið kallaðir til með vitneskju íslenskra stjórnvalda. Var S ekki talinn hafa sýnt fram á að þau útgjöld Í yrðu ekki talinn eðlilegur kostnaður stjórnvalda vegna strandsins.