Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1996 — Upplýsingalög

Hæstiréttur birt 26. janúar 2017

278/2016

Íslenska ríkið (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl) gegn Guðrúnu Sigurðardóttur (Jón Sigurðsson hrl)

G hóf störf hjá embætti umboðsmanns skuldara haustið 2010 og starfaði hún þar fram í maí 2015 þegar ráðningarsamningi hennar var rift. Tilefni þess voru ávirðingar G sem fólust í því að hún hafði haft afskipti af þremur málum fyrrverandi eiginmanns síns sem höfðu verið til meðferðar hjá embættinu. G höfðaði mál gegn Í og krafðist bóta vegna uppsagnarinnar. Var tekið fram að þótt afskipti G af fyrrnefndum málum hefðu verið brot gegn ríkum trúnaðarskyldum hefði G í starfi sínu ekki tekið ákvarðanir í málunum og ekki lægi fyrir að hún hefði notfært sér upplýsingarnar í eigin þágu eða hefði miðlað þeim til annarra. Var því talið að ávirðingar sem G höfðu verið gefnar að sök hefðu ekki getað haft í för með sér fyrirvaralausan brottrekstur. Af þeim sökum hefði riftun ráðningarsamningsins verið ólögmæt. Var Í gert að greiða G bætur vegna fjártjóns og miska.