Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 94. gr. a laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
ABÍ sf. krafði D um greiðslu bóta vegna tjóns sem hlotist hafði af notkun óvátryggðs ökutækis, þegar árekstur varð milli bifreiðar sem D ók og annarrar bifreiðar. Var krafa ABÍ sf. reist á endurkröfurétti félagsins samkvæmt reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar og 94. og 94. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var sannað að D hefði verið í órétti þegar slysið varð og að hann ætti sök á árekstrinum á grundvelli sakarreglunnar. Þá var ekki talið að 2. mgr. 95. gr. laganna, um endurkröfurétt vátryggingafélags þegar tjóni hefur verið valdið af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, ætti við, þar sem það ákvæði tæki aðeins til vátryggðra ökutækja og bóta sem vátryggingafélag hefði greitt á grundvelli 91. gr. umferðarlaga. Þá þótti ljóst að reglugerð nr. 424/2008 væri sett með stoð í umferðarlögum og endurkröfuréttur ABÍ sf., sem mælt var fyrir um í reglugerðinni, væri að auki í samræmi við almennar reglur um endurkröfu greiddra bóta, sbr. 22. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var því talið að ABÍ sf. ætti rétt til endurkröfu á hendur D vegna þess tjóns sem hann olli í árekstrinum. Hins vegar voru bæturnar lækkaðar um helming á grundvelli 24. gr. skaðabótalaga.
Endurkrafa vegna muna- og líkamstjóns í kjölfar áreksturs. Stefndu voru dæmd til að greiða stefnanda stefnufjárhæð.