Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 73. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Eðvaldi Orra Guðmundssyni og svofelldur (
Brynjar Níelsson hrl)
Sakfellt fyrir gáleysislegan akstur. Ökuréttarsvipting.
K var sýknaður af ákæru um líkamsmeiðingar af gáleysi en sakfelldur fyrir brot á umferðarlögum með því að vera með fleiri farþega en sæti voru fyrir í bifreið hans, en bifreiðin fór útaf vegi í miklu hvassviðri á Hellisheiði eystri og farþeginn J slasaðist lífshættulega.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Borgari Þór Þórissyni (
Guðmundur Ágústsson hdl)
B var ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið of hratt og án nægilegrar aðgæslu í mikilli hálku á vegarkafla vestur Ólafsvíkurveg í beygju við Skógarnesafleggjarann, með sex farþega í bifreið, sem gerð var fyrir fjóra farþega, og voru tveir ungir drengir í pallhýsi bifreiðarinnar. B hafði misst vald á bifreiðinni, sem fór út af veginum og valt með þeim afleiðingum, að pallhýsið losnaði og drengirnir köstuðust af bifreiðinni og lést annar þeirra. Fallist var á það með héraðsdómi, að B hefði sýnt af sér vítavert gáleysi með því að flytja drengina á palli bifreiðarinnar án nokkurs öryggisbúnaðar. Athæfið gerði auknar kröfur til B um ítrustu varkárni á akstri og taldi Hæstiréttur að meta yrði atvik og afleiðingar með sérstöku tilliti til þess. Talið var sannað, að B hefði ekið of hratt og ekki sýnt næga aðgæslu, sérstaklega með hliðsjón af ástandi vegarins og farþegunum á palli bifreiðarinnar. Var B sakfelldur fyrir brot gegn 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 73. gr., 1. mgr. og c- og h- liðum 2. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 100., gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, auk ökuréttarsviptingar í eitt ár. Það var talinn alvarlegur annmarki á rannsókn málsins, að lögregla hafði ekki látið skoða bifreið B sérstaklega eftir slysið.