Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 45. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 29. október 2021

416/2020

Vátryggingafélag Íslands hf (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður) gegn A (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður)

A krafðist þess að viðurkennd yrði full bótaskylda V hf. samkvæmt slysatryggingu hennar vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir við fall af hestbaki. V hf. krafðist þess að bótaskylda þess samkvæmt slysatryggingunni yrði eingöngu viðurkennd að 1/3 hluta þar sem A hefði verið undir áhrifum áfengis þegar slysið varð. Í dómi Landsréttar kom fram að sannað væri að A hefði drukkið áfengi í reiðtúrnum auk þess sem fyrir lægju upplýsingar um mælingu á alkóhólmagni í blóði hennar við komu á bráðamóttöku Landspítalans. Þar sem A hefði ekki fært fram sönnun fyrir því að mæling Landspítalans væri ónákvæm eða röng yrði lagt til grundvallar að mælingin sýndi að A hefði ekki verið fær um að stjórna hestinum örugglega þegar slysið átti sér stað og hún því talin hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með þeirri háttsemi sinni. Í ljósi vitnisburða um að hesturinn hefði hlaupið hratt í burtu eftir slysið og að hann hefði fælst var það mat dómsins að rekja mætti orsakir slyssins að hluta til utanaðkomandi áreitis. Með hliðsjón af þessu og því að A hefði hlotið umtalsvert líkamstjón í slysinu taldi Landsréttur rétt að A yrði látin bera helming tjóns síns sjálf en að öðru leyti viðurkenndur réttur hennar til bótagreiðslna úr vátryggingunni.