Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 16. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 28. apríl 2005

34/2005

Guðmundur Óli Ingimundarson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Húseign í eigu G brann í desember 2002 en hún var tryggð lögboðinni brunatryggingu hjá V. G rak virðisaukaskattsskylda starfsemi og taldi V að við útreikning bótafjárhæðar ætti að taka mið af heimildum G til að færa virðisaukaskatt af kostnaði vegna endurbyggingar hússins til innskatts. Greiddi V bætur í samræmi við þennan skilning, en G krafðist fullra bóta í samræmi við vátryggingarfjárhæð. Vátryggingarsamningur aðila var talinn kveða á um greiðslu tiltekinna bóta til handa G samkvæmt brunabótamati og í vátryggingarskilmálum væri ekki kveðið á um að uppgjöri tjóns skyldi hagað með mismunandi hætti eftir því hvort hinn vátryggði ræki virðisaukaskattskylda starfsemi og iðgjöld einstakra vátryggingartaka tækju ekki mið af slíkum mismunandi uppgjörsreglum. Voru því ekki talin efni til að víkja frá samningi aðila á grundvelli sjónarmiða um óréttmæta auðgun samkvæmt 1. mgr. 39. gr. laga nr. 20/1954, en reglur laga um skattskil til ríkisins þóttu ekki sjálfstætt veita slíka heimild. Krafa G var því tekin til greina.