Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 7. mgr. 102. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákæruvaldið gegn
Jóhanni Rúnari Sigurðssyni og Heiðari Þór Guðmundssyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
J og H voru sakfelldir fyrir þjófnaðarbrot með því að hafa farið inn á athafnasvæði fiskvinnslufyrirtækis og tekið ófrjálsri hendi 70 málmeiningar af óþekktri tegund. Þá var H sakfelldur fyrir vörslur ávana- og fíkniefna, meðal annars í sölu- og dreifingarskyni, og J sakfelldur fyrir akstur bifreiðar í átta skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin voru framin í mismunandi lögsagnarumdæmum og lá ekki fyrir ákvörðun ríkissaksóknara um að fela einum lögreglustjóra saksókn í málinu, sbr. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þótti það ekki koma að sök og var tilgreindum ákæruliðum ekki vísað frá dómi af þeirri ástæðu. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að þjófnaðarbrotið var framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig litið til 8. töluliðar 70. gr. og 77. gr. sömu laga. Með brotum þeim sem J var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms sem var tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. Var J gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði og var hann sviptur ökurétti í fjögur ár og tvo mánuði frá birtingu dómsins að telja. Með hluta brotanna sem H var sakfelldur fyrir rauf hann skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. hegningarlaga og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Þá voru hin haldlögðu fíkniefni H gerð upptæk.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Björgvin Jónsson lögmaður)
X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sem hafnaði utan vegar í skurði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða fyrirliggjandi matsgerðar væri afdráttarlaus um að X hefði verið undir slíkum áhrifum að hann hefði verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega umrætt sinn. Var X gert að greiða 70.000 króna sekt í ríkissjóð en ella sæta fangelsi í sex daga. Þá var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur
saksóknari)
gegn
Eiríki Hannesi Kjerúlf (
Sigmundur Hannesson hrl)
E var ákærður fyrir umferðalagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var brot hans talið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987. Hann var með dómi héraðsdóms dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Ekki var fallist á með E að ákvæði í c. lið 7. mgr. 102. gr. laga nr. 50/1987 ætti við um hann. Þá var með vísan til 6. mgr. 102. gr. sömu laga ekki heldur fallist á þá málsástæðu E að fyrri ölvunarakstursbrot hans hefðu ekki áhrif til þyngingar refsingar nú þar sem umrætt brot væri vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með vísun til framangreinds, 3. mgr. 101. gr. laga nr. 50/1980, fyrri dóma Hæstaréttar, sakaferils E og þess að þetta var í þriðja sinn sem hann gerðist sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna var ákvörðun héraðsdóms um refsingu og ökuréttarsviptingu E staðfest.
Ákært fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Sakfellt. Sektir dæmdar, ökuréttarsvipting og ákærða dæmd til greiðslu alls sakarkostnaðar.