Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Sakfellt fyrir ýmis brot gegn umferðar- og fíknilefnalöggjöfinni, þjófnað og vopnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Agnari Þór Jósefssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðarlögum og dæmdur í níu mánaða fangelsi. Þá var ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Héraðsdómur í máli ákæruvaldsins á hendur einkahlutafélaginu X var ómerktur og málinu vísað heim í hérað til nýrrar meðferðar sökum þess að ekki voru uppfyllt skilyrði til að fella dóm á málið eftir ákvæðum 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, svo sem gert hafði verið.
Einkahlutafélagið X var sem rekstraraðili tilgreindrar hópbifreiðar ákært fyrir að hafa haft bifreiðina í akstri án þess að ökumaður hennar hefði tiltæka til framvísunar lögbundna tímaáætlun eða vaktaskrá er eftirlitsmenn Vegagerðarinnar höfðu afskipti af bifreiðinni. Í dómi héraðsdóms var talið að ekkert lægi fyrir um það, og hefði ekki verið rökstutt af hálfu ákæruvaldsins, með hvaða hætti það hefði verið X til hagsbóta að fyrrgreint brot var framið. Var félagið því sýknað af kröfum ákæruvaldsins. Í dómi Hæstaréttar var sú niðurstaða staðfest með skírskotun til þess að samkvæmt 3. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 væri það skilyrði þess að refsað yrði fyrir það brot, sem X var gefið að sök, að brotið hefði orðið eða getað orðið félaginu til hagsbóta. Af hálfu ákæruvaldsins hefði ekki verið sýnt fram á að þessu skilyrði væri fullnægt. Var héraðsdómur því staðfestur.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson) gegn
X og Y (sjálfur)
Y hf., sem flytjandi í skilningi umferðarlaga var ákært fyrir að hafa ekki skipulagt akstur og vinnutíma ökumanns svo að ekki færi í bága við reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Ekki var talið að verknaðarlýsing í 12. gr. reglugerðar 662/2006 félli undir verknaðarlýsingu 2. mgr.44. gr. a umferðarlaga og því ekki refsiheimild til staðar. Félagið var því sýknað og sakarkostnaður lagður á ríkissjóð.