Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 23. gr. laga nr. 49/2005 — Lög um fullnustu refsinga
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari)
gegn
Guðnýju Ólöfu Gunnarsdóttur (
Brynjar Níelsson hrl)
G var sakfelld fyrir fjárdrátt í opinberu starfi með því að hafa á sjö mánaða tímabili í starfi sínu sem sendiráðsfulltrúi í sendiráði Íslands í A og síðar stjórnarráðsfulltrúi og starfsmaður á rekstrar- og þjónustusviði utanríkisráðuneytisins dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu samtals 335.768 evrur. Var brot hennar talið varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 138. gr. sömu laga. Í hinum áfrýjaða dómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var talið sannað með játningu G og öðrum gögnum málsins að hún væri sek um þá háttsemi sem henni var gefin að sök. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um stórfellt brot var að ræða í opinberu starfi sem náði yfir sjö mánaða tímabil. G játaði brot sitt skýlaust og vísaði á gögn sem flýttu fyrir rannsókn málsins. Þá hafði hún greitt til baka 76.730 evrur. Var refsing G ákveðin fangelsi í 2 ár og voru 22 mánuðir af refsingunni bundnir skilorði vegna sérstakra aðstæðna hennar.
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðnýju Ólöfu Gunnarsdóttur (
Brynjar Níelsson hrl)
Ákærða var dæmd í tveggja ára fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir fjárdrátt í opinberu starfi.