Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lög: Lög um hönnunarvernd nr. 48/1993

Hæstiréttur birt 1. mars 2001

280/2000

Grétar Franksson (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn Sturlu Má Jónssyni (Brynjólfur Kjartansson hrl)
Lykilorð: Hönnunarvernd.

A krafði Í um bætur vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Opinbert mál hafði verið höfðað gegn A vegna gruns um að hann hefði dregið sér fé en hann verið sýknaður. Taldi A að Í hefði bakað sér tjón með rannsóknaraðgerðum lögreglu og málsmeðferð í sakamálinu sem hefði verið höfðað án nægjanlegs tilefnis. Fallist var á að Í hefði ekki fært fram viðhlítandi rök fyrir því að nauðsyn hefði borið til að halda A í gæslu í rúmar tvær klukkustundir á rannsóknarstigi hins opinbera máls. Þá var fallist á að ekki hefði verið ástæða til að endurtaka leit á heimili A og í sameign fjöleignarhúss, sem hann bjó í. Voru honum dæmdar miskabætur vegna þessa. Þá var fallist á að A bæru skaðabætur vegna skyrtu sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins en ekki skilað. Hins vegar var hafnað að ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991 fælu í sér heimild til að dæma bætur vegna þess að A hefði verið sóttur til sakar án nægjanlegs tilefnis. Þótti ekki sýnt að skilyrði væru til slíkra bóta á grundvelli sakarreglunnar. Þá var hafnað kröfu A um bætur vegna mismunar á lögmannskostnaði samkvæmt gjaldskrá og tildæmdum málsvarnarlaunum í sakamálinu.