Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 26. gr. laga nr. 47/1971 — Lög um náttúruvernd

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2017

862/2016

Reykjavíkurborg (Páll Arnór Pálsson hrl, Sonja María Hreiðarsdóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn Kópavogsbæ, Grindavíkurbæ, Mosfellsbæ (Guðjón Ármannsson hrl) og til réttargæslu Seltjarnarnesbæ

R höfðaði mál á hendur nágrannasveitarfélögum sínum og gerði þá kröfu að nánar tilgreindu landsvæði yrði skipað innan staðarmarka sinna. K tók til varna í málinu og krafðist sýknu af kröfum R. Umrætt landsvæði hafði áður tilheyrt Seltjarnarneshreppi hinum forna, en hafði verið skipað innan staðarmarka K árið 1948 með ákvörðun félagsmálaráðuneytisins um að skipta Seltjarnarneshreppi upp í tvö sveitarfélög. Þá hafði landsvæðið verið úrskurðað þjóðlenda með úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 2/2004 sem staðfestur var að mestu með dómi Hæstaréttar í máli nr. 685/2008. Í dómi sínum rakti Hæstiréttur hvernig vöxtur sveitarfélagsins Reykjavíkur hefði þróast með þeim hætti að sveitarfélaginu hefðu verið lagðar til nærliggjandi jarðir og lögsagnarumdæmi þess stækkað með lögum á hverjum tíma. Í þeim lögum kæmi hvergi fram að lögsaga sveitarfélagsins hefði átt að vera víðtækari en þar greindi. Þá væri í þeim lögum hvergi að finna fyrirmæli um að staðarmörk sveitarfélagsins næðu til þess lands sem aðalkrafa R í málinu tæki til. Með því að R hefði ekki fært fram haldbær rök fyrir því að áðurgreind ákvörðun félagsmálaráðuneytisins hefði verið ólögmæt, lægi fyrir gild ákvörðun þess um að hið umþrætta land lægi innan staðarmarka K. Gætu önnur þau atvik og röksemdir sem R vísaði til ekki breytt þeirri niðurstöðu. Var K því sýknað af kröfum R.