Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt. nr. 46/2009

Landsréttur birt 24. júní 2022

286/2021

Eimskipafélag Íslands hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

E hf. höfðaði mál gegn Í og gerði þá kröfu að ógiltir yrðu úrskurður yfirskattanefndar og úrskurður ríkisskattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda E hf. fyrir gjaldárin 2014 og 2015 vegna óbeins eignarhalds E hf. á lögaðilum í ríkjunum Antígva og Barbúda. Byggði Í á því að hagnaður E hf. vegna óbeins eignarhalds E hf. á lögaðilum í fyrrgreindum ríkjum félli undir gildissvið 57. gr. a. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og hefði E hf. því borið að gera grein fyrir þeim tekjum og greiða tekjuskatt af hagnaðinum. Byggði E hf. á því að 57. gr. a. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt tæki ekki til hagnaðar félaganna í Antígva og Barbúda þar sem færeysk félög stæðu á milli E hf. og félaganna og að þau hefðu sætt eðlilegri skattlagningu í Færeyjum. Jafnframt taldi E hf. að undantekningarákvæði 4. mgr. 57. gr. a. laga nr. 90/2003 leysti félagið undan skattskyldu. Í dómi Landsréttar var litið til þess að fyrrgreindir lögaðilar á Antígva og Barbúda hefðu verið skráðir í lágskattaríki í skilningi 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003 og væru CFC-félög í skilningi reglugerðar nr. 1102/2013. Tók Landsréttur fram að svo unnt væri að leggja til grundvallar að ekki væri um eignatekjur að ræða í skilningi 1. töluliðar 4. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003 þyrfti eðli máls samkvæmt að sýna fram á að tekjurnar stöfuðu af raunverulegri atvinnustarfsemi. Að virtum þeim atriðum sem fram kæmu í 6. gr. reglugerðar nr. 1102/2013 og sem líta skyldi til við mat á því hvort því skilyrði væri fullnægt taldi Landsréttur að fallast yrði á það með héraðsdómi að E hf. hefði ekki sýnt fram á að svo væri. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um annað en málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2021

E-1889/2020

Eimskipafélag Íslands hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu var deilt um endurákvörðun ríkisskattstjóra á opinberum gjöldum stefnanda gjaldárin 2014 og 2015 vegna óbeins eignarhalds stefnanda á lögaðilum á eyjunum Antígva og Barbúda í Karíbahafi, sbr. 57. gr. a í lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt með síðari breytingum. Var það niðurstaða dómsins að sýkna bæri stefnda, íslenska ríkið af öllum kröfum stefnanda, Eimskipafélags Íslands hf.

Landsréttur birt 25. janúar 2021

719/2020

Skattrannsóknarstjóri ríkisins (Theodóra Emilsdóttir, settur skattrannsóknarstjóri) gegn X Ltd (Bogi Nilsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum X Ltd. um að úrskurðað yrði að beiðni S um afhendingu gagna, sem vörðuðu X Ltd., væri ólögmæt og að X Ltd. eða Y ehf., sem beiðnin beindist að, væri ekki skylt að afhenda S gögnin. Í úrskurði héraðsdóms var einnig hafnað kröfu X Ltd. um að S yrði gert að skila gögnum sem vörðuðu X Ltd. og S hefði fengið afhent á grundvelli beiðninnar. Í úrskurði Landsréttar var vísað til þess að umrædd gögn tengdust rannsókn á ætluðum brotum Z hf. og var fallist á að þau kynnu að geyma upplýsingar sem hefðu sönnunargildi þar að lútandi. Hefði Y ehf. því verið skylt að verða við framangreindri beiðni S.