Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 10. gr. laga nr. 46/1991 — Lög um búfjárhald, forðagæslu o.fl.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2001

323/2000

Sigurjón S. Jónsson Bláfeld (Páll Arnór Pálsson hrl) gegn Jóni Hólm Stefánssyni (Magnús Guðlaugsson hrl)

Hestur í eigu S varð fyrir bifreið J. Drapst hesturinn en verulegar skemmdir urðu á bifreiðinni og krafði J S um bætur vegna þess tjóns sem hann varð fyrir. Byggði J á því að hesturinn hefði hlaupið í veg fyrir bifreið hans og um væri að kenna vanrækslu S við gæslu hestsins. Lausaganga stórgripa var bönnuð þar sem slysið varð. Talið var sannað að hesturinn hefði, ásamt fleiri hrossum í eigu S, verið kominn út úr girðingu um land S daginn fyrir slysið. Þá var talið sannað með framburði vitna að ástand girðinga við land S hefði ekki verið nægjanlega gott. Talið var að ástandi girðinga og eftirliti S með hestum sínum hefði verið þann veg farið að rekja mætti til gáleysis hans að þeir sluppu. Var S gert að bæta J tjón hans að 3/4 hlutum. J var hins vegar talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður og í ljósi þess að hann vissi að lausaganga hrossa væri til vandræða þar sem slysið varð. Var hann því látinn bera 1/4 hluta tjóns síns sjálfur. Fundið var að því að héraðsdómari tók orðrétt úr stefnu og úr greinargerð stefnda í héraði umfjöllun þeirra um málsástæður og lagarök í stað þess að vinna úr gögnunum helstu málsástæður aðila og réttarheimildir sem þeir byggðu á.