Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 86. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög

Hæstiréttur birt 30. mars 2006

532/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Ingimar Halldórssyni (Björn Jóhannesson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

I var ákærður fyrir fjárdrátt í opinberu starfi með því að hafa sem framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga dregið sér samtals rúmlega 17 milljónir króna af bankareikningi sambandsins. I viðurkenndi fjárdráttarbrot en mótmælti því að hafa verið í opinberu starfi. Fallist var á þá niðurstöðu héraðsdóms að I hefði í fyrrnefndu starfi sínu verið opinber starfsmaður, meðal annars með vísan til 86. gr. sveitarstjórnarlaga. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi. Þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir, en I hafði játað brot sitt og bætt það tjón er af hlaust, auk þess sem hann hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.