Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 56. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Ó á hendur S var vísað frá dómi en málið var til komið vegna starfsloka Ó hjá S. Talið var að krafa Ó um viðurkenningu á ólögmæti uppsagnar hans væri málsástæða fyrir annarri kröfu Ó um að viðurkennd yrði bótaskylda S vegna tjóns Ó vegna sömu uppsagnar. Yrði því ekki lagður dómur á fyrri kröfuna. Þá var Ó hvorki talinn hafa gert grein fyrir því fjárhagslega tjóni sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna starfslokanna né hvernig þau tengdust meintu einelti sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Einnig var í dómi Hæstaréttar tekið fram að við úrlausn málsins skipti túlkun ákvæða tiltekins kjarasamnings verulegu máli en málið hefði ekki verið reifað með tilliti til hans af hálfu Ó og hann ekki lagður fram. Braut málatilbúnaður Ó gegn e. lið 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Kröfum stefnanda á hendur stefnda vegna meintrar ólögmætrar uppsagnar vísað frá dómi ex officio vegna óskýrrar kröfugerðar.
Jón Sævar Baldvinsson gegn
Sveitarfélaginu Ölfusi
Sveitarfélag dæmt til að greiða bætur vegna ólögmætrar uppsagnar.