Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 36. gr. laga nr. 45/1994 — Vegalög

Hæstiréttur birt 14. maí 2009

346/2008

Valdimar Gunnarsson og Jón Steinar Gunnarsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Reynir Karlsson hrl)

V hlutaðist til um endurgerð 15 km langs kafla á þjóðvegi nr. 1. Var ráðgert að vegurinn lægi m.a. um land í eigu VG og JS. Ekki náðist samkomulag milli V og VG og JS um bætur og lagði V ágreininginn fyrir matsnefnd eignarnámsbóta. Taldi V að eignarnámið ætti að ná til lands undir 40 m breitt vegsvæði að flatarmáli 16,9 hektarar. Matsnefndin vísaði til 33. gr. þágildandi vegalaga nr. 45/1994 um að leyfi V þyrfti til mannvirkjagerðar á 30 m kafla frá miðlínu stofnvega og taldi að eignarnáminu yrðu ekki settar þrengri skorður. Miðaði hún bætur við að eignarnámið tæki til 21,84 hektara. V greiddi VG og JS bætur að frátöldum þeim hluta þeirra sem ákveðnar voru fyrir land umfram 16,9 hektara. Höfðuðu VG og JS mál til heimtu mismunarins. Talið var að þó að matsnefnd eignarnámsbóta væri, samkvæmt 4. gr. laga nr. 11/1973, að meginreglu ætlað að taka mið af því hvernig eignarnemi geri grein fyrir umfangi þeirra réttinda sem aðgerð hans beinist að, væri matsnefndin ekki bundin að þessu leyti af málatilbúnaði eignarnema ef lýsing hans á réttindum, sem meta ætti bætur fyrir, gengi skemur en eignarnámið myndi í raun gera að lögum. Væri því ekki litið svo á að matsnefndin hefði farið út fyrir lögmælt hlutverk sitt. Hafi V borið því við að vegsvæðið gegnum land VG og JS væri að meðaltali þrengra en þeir 40 m sem þegar hafi verið greiddar eignarnámsbætur fyrir. Hafi VG og JS ekki fært fram haldbær andmæli gegn þessu. Þá hafi eldri vegur verið lagður niður samhliða gerð nýja vegarins. Óumdeilt sé að hann sé ekki lengur ætlaður umferð að öðru leyti en sem reiðvegur og til rekstrar búfjár. Honum fylgi því ekki lengur þau eignarhöft sem leitt hafi af 33. gr. þágildandi vegalaga, en sams konar höft stafi nú af hinum nýja vegi. Var ekki talið að um sviptingu eignarráða væri að ræða enda gætu VG og JS nýtt landsvæðið að öðru leyti. Væri um að ræða almennar kvaðir sem hvíli á öllum landareignum sem engar bætur kæmu fyrir. Var því sýknað af kröfu VG og JS.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2008

E-83/2007

Valdimar, Gunnarsson, Jón og Steinar Gunnarsson (Karl Axelsson hrl) gegn Vegagerðinni (Reynir Karlsson hrl)

Ágreiningur var um hversu stórt land ætti að taka eignarnámi vegna vegaframkvæmda í landi stefnenda. Í málinu reyndi á mörk eignarskerðingar og eignarnáms. Stefndi var sýknaður af kröfu landeigenda um frekari bætur.