Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 78. gr. laga nr. 44/1999 — Lög um náttúruvernd

Hæstiréttur birt 3. apríl 2003

449/2002

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Magnús Thoroddsen hrl)

X var ákærður fyrir að hafa á árunum 2000 og 2001 raskað hreiðurstað arna og spillt friðlýstum náttúruminjum í þeim tilgangi að hindra arnarvarp í Miðhúsaeyjum. Var X ákærður fyrir brot gegn nánar tilteknum ákvæðum í lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og lögum nr. 44/1999 um náttúruvernd, sbr. auglýsingu nr. 425/1977. Ekki var talið ljóst hvort sá staður sem örn kynni að verpa á gæti fallið undir „lífsvæði dýra“ í ákvæðinu sem X sætti ákæru fyrir og kvað á um að ávallt skyldi „gæta fyllstu varkárni og nærgætni gagnvart villtum dýrum og lífsvæðum þeirra og forðast óþarfa truflun“. Var umrætt orðalag talið of almennt og því ekki nægilega ótvírætt og glöggt. Uppfyllti það ekki þær kröfur sem gera verður til skýrleika refsiheimilda. Þá varð ekki séð að friðlýsing eyjunnar H tæki til friðunar fugla og sérstaks lífríkis þeirra eða búsvæða. Var X því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins í málinu.