Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 55. gr. laga nr. 44/1999 — Lög um náttúruvernd

Landsréttur birt 30. október 2020

588/2019

Dánarbú Else Ingeborg Hansen (Lúðvík Bergvinsson lögmaður) gegn Hafnarfjarðarkaupstað (Sigurður Jónsson lögmaður, Ívar Bragason lögmaður, 2. prófmál)
Lykilorð: Fasteign. Eignarréttur. Hefð.

Árið 1953 var spildu úr jörðinni Setbergi afsalað til S en umrædd spilda var 3.000 fermetrar samkvæmt afsali. Nokkrum árum síðar, eða um 1957, reisti S girðingu utan um töluvert stærra svæði. Db. E, sem leiddi rétt sinn frá S, höfðaði mál gegn H og krafðist þess að viðurkenndur yrði beinn eignarréttur þess að öllu því landi sem væri innan fyrrnefndrar girðingar. Byggði db. E á því að til eignarhalds á því svæði sem væri utan lýsingar í afsali en innan marka girðingar hefði stofnast á grundvelli laga nr. 46/1905 um hefð. Í dómi Landsréttar kom fram að í tilviki spildna sem væru á mörkum tveggja jarða hefðu almennt verið gerðar ríkar kröfur til þess að unnt væri að hefða inn fyrir landmarki nágrannajarða í andstöðu við merki samkvæmt þinglýstum gögnum. Þá var rakið að hin umdeilda spilda hefði ekki verið hluti af því afsali sem afmarkaði hið selda með skýrum hætti. Hefði S og fjölskyldu hans ekki getað dulist að sú girðing sem reist var náði út fyrir þá spildu sem S hefði fengið afsalað. Þau hefðu ekki ráðstafað hinni umdeildu spildu með afsali og gögn um sölu á Setbergi árið 1980 bæru með sér að eigendur Setbergs hafi álitið spilduna hluta af því sem þar var ráðstafað til H. Eins hefðu opinber skráning og gjöld miðast við stærð samkvæmt afsali og ekkert lá fyrir um hagnýtingu spildunnar að öðru leyti en að S og fjölskylda hans hefðu gróðursett þar tré og reist fyrrnefnda girðingu. Var talið að skilyrði 1. mgr. 2. gr. laga nr. 46/1905 um 20 ára óslitið eignarhald á fasteign væru ekki uppfyllt. Var H því sýknaður af kröfu db. E.