Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 6. gr. laga nr. 43/1987 — Lög um lögskráningu sjómanna
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Steingrími Þorvaldssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Skipstjórinn S var ákærður fyrir að hafa látið úr höfn á skipinu V „vanmönnuðu vegna þess að 2. stýrimaður og yfirvélstjóri höfðu eigi gild atvinnuréttindi“ og með því brotið nánar tilgreind ákvæði laga nr. 112/1984 um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum og laga nr. 113/1984 um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Talið var að refsiheimildir laganna væru nægilega skýrar og að S hefði unnið sér til refsingar fyrir þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin 100.000 krónur í sekt.