Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 52. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 18. október 2001

104/2001

Þór hf (Steingrímur Gautur Kristjánsson hrl) gegn Kristni B. Jónssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)

Þ hf. seldi á árinu 1997 H nýja dráttarvél. Í ljós komu ýmsir gallar á vélinni og 7. september 1998 undirrituðu aðilar samkomulag um að Þ keypti vélina aftur af H. Taldi Þ þetta samkomulag hafa verið til staðfestingar á eldra munnlegu samkomulagi þeirra sama efnis, en því neitaði H. Um sama leyti og samkomulag þetta var undirritað seldi Þ hf. vélina til K, en sölureikningur var dagsettur 4. september s.á. Með símbréfi 7. september 1999, sem barst Þ hf. 8. sama mánaðar, kvartaði sonur K með almennum orðum undan göllum á vélinni og þjónustu áfrýjanda. Fór svo, að K lýsti yfir riftun á kaupunum með símbréfi 16. maí 2000 og stefndi síðan Þ hf. til að þola riftun kaupanna og til að endurgreiða þann hluta kaupverðs sem K hafði innt af hendi. Í málinu var um það deilt hvort dráttarvélin hefði við afhendingu verið haldin verulegum göllum, sem K hefði ekki séð eða átt að sjá við skoðun. Af framlagðri matsgerð 4. apríl 2000 þótti fullljóst að vélin hefði verið haldin mjög verulegum annmörkum er skoðun matsmanns fór fram. Samanburður matsgerðarinnar við úttektir er gerðar höfðu verið á vélinni áður en K keypti hana þótti sýna að vélin hefði verið haldin verulegum göllum við afhendingu. Ekki var hnekkt þeirri fullyrðingu K að vélin hefði verið afhent einni viku eftir dagsetningu fyrrgreinds sölureiknings. Var samkvæmt því ekki liðið ár frá afhendingu vélarinnar þar til kvörtun barst, sbr. 54. gr. þág. laga nr. 39/1922. Þá voru hvorki ákvæði 52. né 57. gr. sömu laga talin standa riftunarkröfu K í vegi. Var samkvæmt þessu staðfest niðurstaða héraðsdóms um riftun á kaupum aðila og endurgreiðslu kaupverðs dráttarvélarinnar.