Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 31. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 21. júní 2001

22/2001

Jakob A. Traustason (sjálfur) gegn Almennu málflutningsstofunni sf (Ólafur Axelsson hrl)

A krafði J um þóknun og endurgreiðslu útlagðs kostnaðar í tengslum við lögfræðilega þjónustu og ráðgjöf sem A kvaðst hafa veitt J á árunum frá 1990 til 1994. A gerði J fyrst reikning vegna kröfunnar 3. október 1996. Viðurkenndi einn fyrirsvarsmanna A að framtaksleysi hans hefði verið einu um að kenna að J var ekki gerður reikningur fyrr. Ekki varð ráðið af gögnum málsins að A hefði unnið að þeim málum, sem krafan laut að, eftir 24. janúar 1994. Var því talið að krafan hefði orðið gjaldkræf þann dag. A höfðaði mál á hendur J 10. júní 1997, en því var vísað frá héraðsdómi 6. apríl 1998. Þar sem A gætti ekki að því að höfða nýtt mál innan sex mánaða frá þeim degi var fyrningu ekki slitið fyrr en nýtt mál var höfðað 3. nóvember 1998. Voru þá liðin meira en fjögur ár frá því að krafan varð gjaldkræf og var hún því fyrnd. Var J sýknaður af kröfu A.