Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 20. september 2013

437/2013

Karl K. Karlsson ehf (Lilja Jónasdóttir hrl) gegn Þrotabúi Rann ehf (Sveinn Guðmundsson hrl) og Högum hf (Þórður Bogason hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu K ehf. um að viðurkenndur yrði forkaupsréttur félagsins að fasteign í eigu þrotabús R ehf. sem K ehf. hafði haft á leigu um nokkurra ára skeið. Í kjölfar þess að samningur komst á milli þrotabúsins og H hf. um kaup þess síðarnefnda á fasteigninni var K ehf. boðið að nýta sér forkaupsrétt samkvæmt leigusamningi félagsins við R ehf. innan tíu daga. Í málinu var m.a. ágreiningur með aðilum um hvort réttilega hafi verið staðið að því þegar K ehf. var gefinn kostur á að nýta sér forkaupsréttinn og með hvaða skilmálum og hvenær endanlegur samningur hafi í raun komist á með þrotabúinu og H hf. um kaup á húsnæðinu þar sem samþykkt gagntilboð aðila hafði verið bundið tilteknum fyrirvörum. Í dómi Hæstaréttar kom m.a. fram að kaupsamningur hafi komist á milli þrotabúsins og H hf. 5. október 2012 með samþykki gagntilboðs. Sá galli hafi verið á tilkynningu til K ehf. um að forkaupsréttur hans væri virkur að félaginu hafi ekki verið gefinn sá 15 daga frestur sem kveðið væri á um í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2002. K ehf. hafi á hinn bóginn lýst því yfir við lok þess frests sem félaginu var veittur að það myndi nýta sér forkaupsréttinn. Yfirlýsingin hafi haft þá þýðingu að félagið myndi ganga inn í kaupsamninginn með þeim skilmálum sem þar greindi þar á meðal um greiðslu kaupverðs við afhendingu eignarinnar en hún var þá þegar í leiguumráðum K ehf. og því tilbúin til afhendingar félaginu. K ehf. hafi á hinn bóginn ekki innt af hendi kaupverð fasteignarinnar í samræmi við samninginn eða innan þess viðbótarfrests sem félaginu var gefinn í því skyni. Var niðurstaða hins kærða úrskurður því staðfest.

Hæstiréttur birt 26. maí 2011

533/2010

Haraldur Haraldsson (Skarphéðinn Pétursson hrl) gegn Hrefnu Kristínu Hannesdóttur (Hróbjartur Jónatansson hrl)

HH höfðaði mál gegn HKH og krafðist þess að hún gæfi út afsal að eignarhlut að tiltekinni jörð í samræmi við kaupsamning sem aðilar höfðu gert með sér. Talið var sannað að kaupsamningurinn væri málamyndagerningur og var HKH því sýknuð af kröfum HH. Með vísan til aðdraganda viðskiptanna og framburðar vitna virtist ljóst að tilgangur samningsgerðar aðila hefði í raun verið sá að HH leigði veiðirétt í á sem fylgdi jörðinni og fengi um leið tryggingu fyrir efndum HKH. HH hafði áður leigt veiðirétt jarðarinnar og kynnt sér hvernig haga mætti málum til nýtingar veiðiréttarins til lengri tíma. Aldrei var gengið frá kaupsamningnum formlega svo unnt væri að þinglýsa honum og svo virtist sem það hefði aldrei staðið til. Einungis var talið sannað að HH hefði einu sinni óskað eftir útgáfu afsals á þeim 20 árum sem liðin voru frá útgáfudegi kaupsamningsins. Loks hafði HH ekki haft frammi kröfur sínar fyrr en hann hafði notið veiðiréttar síns að fullu, miðað við þá fjárhæð sem hann hafði greitt HKH vegna samningsins og það verð sem hann hafði áður þurft að greiða fyrir leigu leiguréttarins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2010

E-30/2010

Haraldur Haraldsson (Skarphéðinn Pétursson hrl) gegn Hrefnu Kristínu Hannesdóttur (Jón Þór Ólason hdl)
Lykilorð: Málamyndagerningur.

Stefnandi krafðist þess að stefnda yrði dæmd til að gefa út afsal fyrir 30% eignarhluta að jörð á grundvelli þess að stefnda hafði undirritað ódagsettan kaupsamning á árinu 1989. Dómurinn taldi stefndu hefði gert svo líklegt að kaupsamningurinn væri málamyndagerningur að sýkna bæri hana af kröfum stefnanda.