Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 10. gr. laga nr. 37/2016 — Lög um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum

Hæstiréttur birt 12. janúar 2017

826/2016

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Autonomy Capital LP, Autonomy Master Fund Limited, GAM Trading og Autonomy Iceland Two S.á.r.l (Pétur Örn Sverrisson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var að hluta til greina krafa A. o.fl um dómkvaðningu matsmanna til að svara átta spurningum án þess að mál hefði verið höfðað gegn Í. Var hinn kærði úrskurður staðfestur að öðru leyti en því að hafnað var að leggja þrjár matsspurninganna fyrir hina dómkvöddu matsmenn þar sem þær væru einvörðungu að leita mats á atriðum sem bersýnilega væru tilgangslaus til sönnunar, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eða hefðu ekki tengsl við atvik að baki væntanlegum kröfum A o.fl. á hendur Í, sbr. 1. mgr. 77. gr. sömu laga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. nóvember 2016

M-96/2016

Autonomy Capital LP, Autonomy Master Fund Limited, GAM Trading og Autonomy Iceland Two S.á. r. l (Pétur Örn Sverrisson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Lykilorð: Matsbeiðni.

Fallist var á kröfu sóknaraðila um öflun matsgerðar að undanskildum spurningum um nánar tiltekin atriði þar sem þær þóttu tilgangslausar til sönnunar eða ekki hafa tengsl við það álitaefni sem ætlunin var að leita sönnunar á.