Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 30. gr. laga nr. 36/2001 — Lög um Seðlabanka Íslands
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var að hluta til greina krafa A. o.fl um dómkvaðningu matsmanna til að svara átta spurningum án þess að mál hefði verið höfðað gegn Í. Var hinn kærði úrskurður staðfestur að öðru leyti en því að hafnað var að leggja þrjár matsspurninganna fyrir hina dómkvöddu matsmenn þar sem þær væru einvörðungu að leita mats á atriðum sem bersýnilega væru tilgangslaus til sönnunar, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eða hefðu ekki tengsl við atvik að baki væntanlegum kröfum A o.fl. á hendur Í, sbr. 1. mgr. 77. gr. sömu laga.
Fallist var á kröfu sóknaraðila um öflun matsgerðar að undanskildum spurningum um nánar tiltekin atriði þar sem þær þóttu tilgangslausar til sönnunar eða ekki hafa tengsl við það álitaefni sem ætlunin var að leita sönnunar á.