Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 2. gr. laga nr. 33/2003 — Lög um verðbréfaviðskipti

Hæstiréttur birt 24. ágúst 2016

491/2016

Þrotabú Icarusar ehf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Kaupþingi ehf (Grímur Sigurðsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem viðurkennt var að kröfu K ehf. yrði við gjaldþrotaskipti á þb. I ehf. skipað í réttindaröð samkvæmt 111. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Samkvæmt samkomulagi milli S ehf., síðar I ehf., og I Ltd. sem gert var í janúar 2006 skuldbatt S ehf. sig til að greiða I Ltd. tilgreinda fjárhæð og skyldi I Ltd. endurgreiða hana með nánar tilgreindum hætti. Með samningi 6. janúar 2006 fékk S ehf. lán úr hendi K ehf. sem lagt var inn á vörslusafn félagsins hjá K ehf. Var lánið síðar notað á árinu 2006 til að inna af hendi hluta af greiðslu samkvæmt samkomulaginu milli S ehf. og I Ltd. Hélt K ehf. því fram að með samningi milli K ehf. og S ehf. 16. janúar 2008 hefði S ehf. sett að handveði öll verðmæti á vörslusafni félagsins til tryggingar efndum samningsins frá 6. janúar 2006. Bú I ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 26. júlí 2009 og bú I Ltd. 8. mars 2010. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar þb. I ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta hefði hvorki I Ltd. né þrotabú þess staðið félaginu skil á greiðslum samkvæmt fyrrgreindu samkomulagi. Við uppkvaðningu gjaldþrotaúrskurðarins hefði þb. I ehf. því öðlast samsvarandi fjárkröfu á I Ltd. að því tilskildu að slíkt færi ekki í bága við réttindi annarra, sbr. 1. mgr. 72. gr. laga nr. 21/1991. Ekkert lægi fyrir um að K ehf. eða I ehf. hefði áður tilkynnt I Ltd. um að krafan væri veðsett, svo sem áskilið væri í 1. mgr. 46. gr. laga nr. 75/1997. Ákvæði í samningi þess efnis að skuldari skyldi inna greiðslu af hendi á tiltekinn reikning gæti ekki komið í stað slíkrar tilkynningar. Var því ekki talið að krafa þb. I ehf. á hendur I Ltd. og síðar þrotabúi þess væri undirorpin veðrétti K ehf. Samkvæmt þessu var kröfum K ehf. á hendur þb. I ehf. hafnað, en K ehf. lýsti kröfum í búið eftir að kröfulýsingarfresti lauk.