Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 12. gr. laga nr. 29/1963 — Lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
Haraldur Ásgeirsson (
Helgi V. Jónsson hrl)
gegn
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, til vara gegn, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og íslenska ríkinu (
Jón G. Tómasson hrl)
H gegndi embættisstörfum í þjónustu ríkisins frá 1945 til 1985, er hann hóf töku eftirlauna úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (L) á grundvelli launa fyrir starf sem forstöðumaður Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (RB), er hann gegndi um 20 ára skeið. Höfðaði H mál gegn L og til vara L og íslenska ríkinu og krafðist þess að viðurkennt yrði að eftirlaun hans tækju mið af reglubundnum heildarlaunum eftirmanns hans hjá RB auk þess sem hann krafðist greiðslu vangoldinna eftirlauna. Ekki var talið að skilja bæri ákvæði 3. mgr. 12. gr. laga nr. 29/1963, sem í gildi voru meðan H átti aðild að sjóðnum sem starfsmaður, þannig að upphæð ellilífeyris skyldi vera hlutfall af öllum launum vegna starfsins hverju nafni sem þau nefndust. Var ekki fallist á að reglubundnar greiðslur fyrir yfirvinnu til forstjóra RB hafi eðlis síns vegna verið tengdar föstum embættislaunum með þeim hætti, að skylt væri að líta á þær sem hluta af launum fyrir dagvinnu, sem veitt hefðu rétt til eftirlauna. Var einnig litið til þess að framkvæmd reglna um iðgjöld L og ákvörðun eftirlauna úr sjóðnum hafi legið ljós fyrir allan þann tíma, sem hinar reglubundnu greiðslur voru við lýði. Hefðu greiðslurnar ótvírætt verið ákvarðaðar forstjóranum á þeim grundvelli að þær hefðu hvorki áhrif á iðgjöld né eftirlaun, og hafi svo einnig verið um hliðstæðar greiðslur til annarra ríkisstarfsmanna á sama tíma. Voru L og íslenska ríkið sýknuð af kröfum H.