Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 5. gr. laga nr. 24/2000 — Lög um kosningar til Alþingis
M höfðaði mál gegn blaðamanninum J og krafðist ómerkingar ummæla sem birst höfðu í þremur tölublöðum DV. J krafðist sýknu og hélt því m.a. fram að ummælin væru ekki ærumeiðandi, sum þeirra væru höfð eftir öðrum og aðrar væru beinar tilvitnanir í eldri blaðagrein. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um ómerkingu ellefu ummæla þar sem í þeim hefðu falist ærumeiðandi aðdróttanir í garð M í skilningi 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hvað varðar ummæli sem tekin voru úr grein er birst hafði í dagblaði árið 1987 þótti fram komið að þegar J skrifaði sína grein hefði hann haft undir höndum dóm sakadóms Reykjavíkur frá árinu 1987 og hefði niðurstaða dómsins ekki verið í samræmi við ummælin. Því gat J ekki hafa verið í góðri trú um sannleiksgildi þeirra ummæla sem hann birti í grein sinni um málefnið. J var á hinn bóginn sýknaður af kröfu um ómerkingu tveggja ummæla sem lutu að líkamsárás á öryggisvörð. Þá voru miskabætur lækkaðar.
Nánar tilgreind ummæli sem birtust í DV eru dæmd dauð og ómerk. Stefnda gert að greiða stefnanda bætur.