Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 30. gr. laga nr. 20/1992 — Barnalög
K, sem verið hafði í sambúð með M í Noregi, flutti til Íslands með barn hennar og M, án samráðs við M. Í málinu leitaði M eftir því að fá barnið afhent sér með beinni aðfarargerð, en með því yrði aflétt ólögmætu ástandi, sem hann taldi K hafa komið á með því að fara með og halda barninu á Íslandi. Með hliðsjón af framlagðri yfirlýsingu norska dómsmálaráðuneytisins var talið óhjákvæmilegt að líta svo á að fyrrnefndur flutningur barns málsaðila til Íslands hafi verið ólögmætur gagnvart M samkvæmt 2. mgr. 11. gr. laga nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl., sbr. 3. gr. Haagsamningsins. Var því fallist á það með M að beitt yrði úrræðum laga nr. 160/1995 til að aflétta ástandinu. Tekin var til greina krafa M um innsetningargerð hefði K ekki innan tveggja mánaða frá uppsögu dómsins farið með barnið til Noregs eða stuðlað að ferð þess þangað, en ekki var talið að orðalag 1. mgr. 11. gr. laga nr. 160/1995 girti fyrir að barninu yrði ekki skilað með öðru móti en að færa það í hendur M. Var því tekið fram að K gæti eftir atvikum dvalið í Noregi eins og nauðsyn krefði og farið með umsjá barnsins þar uns lyktir fengjust í deilum aðilanna.