Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 73. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Guðrúnu Egilsdóttur Guðjohnsen og X (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
G og X voru ákærðar fyrir skjalafals með því að hafa framvísað hvor sínu skuldabréfinu með falsaðri undirskrift Y sem sjálfskuldarábyrgðarmanns. X játaði að hafa ritað nafn Y á skuldabréfið sem hún var ákærð fyrir að framvísa en kvaðst hafa haft heimild Y til þess. Fyrir dómi skoraðist Y undan vitnaskyldu með vísan til 50. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vegna skyldleika við báðar ákærðu. Í dómi Hæstaréttar var ekki talið hægt að útiloka að X hefði haft heimild Y til ritunar nafns hennar á skuldabréfið og var hún því sýknuð af þeirri háttsemi sem henni var gefin að sök. G bar á hinn bóginn fyrir dómi að Y hefði sjálf ritað nafn sitt á það skuldabréf sem hún var ákærð fyrir að framvísa. Þótti nægilega sannað með rithandarrannsókn að sú fullyrðing var röng. Talið var að G hefði sem útgefandi bréfsins og móttakandi lánsins hlotið að vera kunnugt um fölsunina. Var hún sakfelld fyrir skjalafals og refsing hennar ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.