Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 58. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari)
gegn
Hans Ögmundi Stephensen (
Gylfi Thorlacius hrl)
H var sakfelldur fyrir að hafa slegið A nokkur hnefahögg í andlit með þeim afleiðingum að hann hlaut m.a. varanlega tvísýni. Áverkar A voru taldir svo verulegir að rétt hafi verið að heimfæra brot ákærða undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var ekki fallist á það með héraðsdómi að árásin hefði verið af tilefnislausu og án fyrirvara. Var m.a. litið til 3. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Einnig var litið til þess að ákærði, sem ekki hafði áður gerst sekur um refsivert brot, játaði verknaðinn bæði hjá lögreglu og fyrir dómi og tilkynnti lögreglu strax um brot sitt. Var refsing hans hæfilega ákveðin skilorðsbundið fangelsi í fjóra mánuði.